Quiz 1 |
QUIZ 2 Hér sést óljóst plaggat af bíómynd... (reyndar er þetta framan af DVD). Spurningarnar eru einfaldar. 1 stig fyrir hvert rétt svar. 1. Hvaða mynd er þetta? 2. Hver er aðalleikarinn? 3. Um hvað fjallar myndin? |
QUIZ 3 Næsta quiz kemur hér. Sem fyrr klikkið á QUIZ 3 hér að neðan til að heyra bútinn sem spurningin fjallar um. Spurningarnar eru 3: 1.Hvað heitir myndin? 2.Hvað heita 2 aðalleikarar myndarinnar? 3.Hvað hétu 2 aðalpersónur myndarinnar? |
QUIZ 4 Ég lofaði ykkur allskonar getraunum í þetta skiptið og hér kemur eitthvað nýtt fyrir ykkur. Hér þurfið þið að færa bendilinn um myndina til að reyna að sjá hver þetta er. Hægt er að fá 2 stig fyrir þetta quiz. Spurningarnar eru: Hver er manneskjan? Fyrir hvað er hún mest þekkt? |
QUIZ 5 En þá er það næsta Quiz. Hér er spurt um: 1. Flytjandi? 2. Lag? |
QUIZ 6 Það eru þrjú lagabrot sem þið eigið að þekkja. Klikkið á 1,2 og 3 til að heyra þau. Spurt er um: 1. Flytjanda og nafn lags í öllum þrem lögunum. Hægt er að skora 1 stig fyrir hvert rétt svar. Þ.e. 1 stig fyrir hvern flytjanda og 1 stig fyrir hver lag. Samtals 6 stig. 2. Hvað eiga þessir flytjendur sameiginlegt. Hér er ég að vonast eftir einu réttu svari og 2 stig eru í boði fyrir þann sem getur það rétt. |
QUIZ 7 . Spurt er um plötu (album) og listamann. Her að neðan má sjá glitta í plötu. Hver er listamaðurinn sem gaf hana út og hvað heitir platan. 2 stig í boði. |
QUIZ 8 Já nú er þetta aðeins öðruvísi og nú ætla ég að kanna gáfur ykkar. Hér sjáið þið mynd af landi. Spurt er um hvaða heitir landið og hvað er höfuðborgin í því. 1 stig fyrir hvort svar... Held nú að ef einhver getur landið þá veit sá sami höfuðborgina :) |
QUIZ 9 Klikkið á kassan hér að neðan til að heyra bút úr bíómynd. Spurt er um hvað heitir myndin? Hver er leikarinn sem talar? Hvað heitir karakterinn sem talar? 3 stig í boði. |
QUIZ 10 Og þá er komið að quiz nr. 10 í Quizmeistaranum
. Í þetta sinn sjáum við plaggöt
frá 7 bíómyndum. Hægt er að vinna gommu af stigum
hér. |
QUIZ 11 Já þá er ég búinn að velja öll lögin á Topp 100 lagalistann minn og er búinn að raða niður topp 50. Listinn byrtist þegar allt er komið á hreint. Ég hef ákveðið að gefa ykkur kost á að skora í Quiz-meistaranum með því að giska á hvernig top 3 lítur út hjá mér. 1 stig fæst fyrir réttan flytjanda og 1 stig fyrir rétt lag. Hægt er því að ná sér í 6 stig hérna. Þið verðið þó að giska á rétt sæti. Giskið nú og nælið ykkur í stig í Quiz-Meistaranum . |
QUIZ 12 Þetta quiz er pínu tengt TOP 100 listanum mínum. Réttara sagt top 10. Allavegna er spurt um heiti lags, heiti flytjanda og aukastig fæst fyrir að giska á rétt sæti þessa lags á top 10. Ekki þarf að giska á rétt svar til að reyna að giska á í hvaða sæti þetta lag er á top 10. Allir mega giska á sætið og þeir sem ná því rétt fá allir stig. |
QUIZ 13 Þetta verður pínu öðruvísi núna. Þetta er vísbendingaspurning og mun ég koma með vísbendingu á hverjum degi þar til rétt svar fæst. Hver og einn má giska einu sinni við hverja vísbendingu. Spurt er um hljómsveit. 6 stig: Hljómsveitin var stofnuð árið 1976 af fjórum skólastrákum. Þeir hafa selt yfir 27 milljónir platna. Hljómsveitin hét fyrst tveim orðum en droppuðu fyrra orðinu snemma en héldu svo seinna orðinu. |
QUIZ 14 Ákvað að hafa vísbendingarspurningu aftur. Tókst aldrei að nota allar vísbendingarnar seinast svo ég reyni aftur. Ætti að vera aðeins erfiðara í þetta skiptið. Sem fyrr mun ég byrta vísbendingu hvern dag. Þið megið giska einu sinni við hverja vísbendingu svo notið giskið ykkar. Spurt er um söngkonu. 6 stig. Hún byrjaði ung á sínum tónlistarferli og hefur aðeins ein stjarna (sem byrjar sinn feril svo ung) átt betra start með sinni fyrstu plötu. Fyrsta plata hennar er heitir í höfuðið á henni. QUIS 14 PART II Já engum tókst að giska rétt í gær og ég reyni að hafa vísbendingarnar þannig að erfitt sé að finna þetta á Google enda hálfgert svindl að gera það. En núna meiga allir giska aftur og gangi ykkur vel elskurnar... Spurt er um söngkonu. 5 stig. Söngkonan gaf út hálf misheppnaða plötu árið 1997 og var hún misheppnuð sökum þess að hjálp frá frægri hljómsveit lét lögin hljóma of indie-lega, og það var hún ekki þekkt fyrir. Fyrsta smáskífa þeirrar plötu hét nafni sem hún síðar breytti sökum fráhvarfi Díönu prinsessu. Hún ákvað að skíra smáskífuna í höfuðið á sjálfri sér í staðin, fornafn og eftirnafn listakonunnar. |